Færsluflokkur: Bloggar

Gleðilega hátíð

Fyrsta sem ég ætla að gera í þessu bloggi, er að óska öllum ( þeim sem kíkja á þetta blog ) gleðilegra hátíðar og nýs árs, og þakka kærlega fyrir árið sem er nú liðið, og ég vona að allir hafi sett sér áramótaheit, mín voru svo sem ekkert sérstök, aðalega þessi:

  • Standa mig vel í ræktinni
  • Stunda boltann að viti
  • Vanda mig og leggja sem mesta áherslu á námið sem ég er að byrja í
  • Eyða meiri tíma með kærustunni InLove

En við hjúin komum á Norðfjörð 16. desember og eyddum jólafrí-inu ( sem við erum enn í ) fyrir austan, og jólin hafa verið bara mjög góð, þrátt fyrir lítið af djammi hjá mér, þá hef ég aðalega eytt því í leti. Byrjaði reyndar jólin á að fara á Fáskrúðsfjörð og vinna hjá Guðbjarti, það var allt í lagi að vísu, vinna frá 7-19:30, fór á Leiknisæfingu í leiðinni og var svo kominn aftur á Norðfjörð seinna í vikunni. Svo fékk ég nú að sjálfsögðu gjafir, eins og alltaf Smile ég fékk...

  • Blend peysu og Goal II á dvd frá Guðnýju
  • Hluti í vetrardekk, DVD-ferðaspilari og Levi´s gallabuxur frá mömmu og stjúpa
  • Racket grill frá tengdó
  • Hluti í vetrardekk, joe boxer náttbuxur frá ömmu í Hfj og ömmu & afa á Sfj.
  • Rakspíra frá Gunna og Lindu
  • Simpsons myndin frá Berglindi
  • Bolta frá litlu systur
  • Rosalega flott sængurver og koddaver frá ömmu og afa í Rvk.
  • og margt margt fleira..

Og auðvitað þakka ég fyrir alla gjafirnar, voru rosalega flottar og ég var hæstánægður með þær. Svo eigum við flug aftur 7. janúar suður, og skólinn byrjar 10. janúar, og ég sjálfur er orðinn spenntur fyrir nýja náminu sem ég er að fara í ( Grunndeild tré ). En ég held að ég hef sett nóg hér inn til að þetta kallist flott áramótablogg Wink en ég skelli hérna 1-2 myndum, later.





ar2004


Prófvika framundan

Það má setja á mig stimpilinn "Slappur bloggari" meðan við árangurinn hjá mér :-) En það er samt alltaf gaman að sjá nýjar og nýjar færslur. En sem betur fer er ekki mikið eftir af skólanum, einn dagur og svo prófvika. Svo má skjóta því inn í að ég kem svo austur 16. desember n.k. Svo er náttúrulega gaman að koma með lista yfir næstkomandi lokapróf:

  • Íslenska
  • Landafræði
  • Enska
  • Spænska*
  • Sálfræði*
  • Stærðfræði*

* = Miklar líkur að það verði erfitt próf.

Ég verð svona eiginlega að ná öllum, hámark er að falla í einum áfanga. Því þetta eru 16 einingar alls,  og ef maður nær 9 einingum gildir þetta, en ef það sé undir því, þá fellur maður í öllu.....dammmdammdamm! Það verður bara að spýta í lófana og taka þessi próf með stæl. Svo fer ég á grunndeild tré eftir áramót. En svona til að koma að e-rju öðru, þá er vinna hjá mér og Guðnýju næstu helgi, erum að reyna fá frí á sunnudaginn útaf lokaprófi í íslensku, svo maður þurfi ekki að sitja kófsveittur á kvöldin að læra undir "Íslenskar bókmenntir til 1550". En ég ætla svona að hætta að kvelja ykkur á skólamálum, ætla að setja eitt youtube myndband hérna sem er frá leiknum í meistaradeildinni, Manchester United - Sporting Lissabon.

 

- Óskar Halldór Guðmundsson


Hársbreidd frá sigri..

Jæja, góður leikur þrátt fyrir svekkelsi að vinna ekki leikinn. Samt sem áður var þetta góð frammistaða hjá United og jafntefli á erfiðum útivelli eru góð úrslit.

2vsn1vp

- Óskar Halldór


mbl.is Gallas jafnaði á síðustu mínútu, Arsenal - Man.Utd 2:2
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spá

Segji að leikurinn muni vera æsispennandi og Eiður og Emil búnir að fá fullt af góðum færum en rétt út fyrir og í stöng.

Á 36. mínútu nær Eiður marki með góðri stoðsendingu frá Arnari Þór Viðarsyni.

Á 63. mínútu skorar Ármann Smári Björnsson eftir að hafa skipt sér inn á fyrir Gunnar heiðar.

2 - 0 fyrir Íslandi. Þeir verða bara að koma sér upp eftir leikinn á móti Lettum, það var Stórslys með stóru S-i!

20060903115645360


mbl.is Byrjunarlið Íslands gegn Liechtenstein
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sumarbústaðaferð

Jæja, margt hefur gerst um helgina, skal fara yfir nokkrar staðreyndir í fljótri runu;

  • Fór í ljós á föstudaginn með Guðnýju, hrikalega þægilegt að komast í smá lit...
  • Fórum í ELKO og keyptum nýja myndavél, Sony 7.2 pixla, hrikalega flott.
  • Ég og Guðný keyrðum upp í bústað á föstudagskvöldinu, var frekar leiðinlegt veður á leiðinni, þoka og mikil rigning. Öll umferðin þurfti að vera á 40-70 km hraða alla leið.
  • Höfðum það bara nice og slepptum okkur í Sex&theCity gláp og borðuðum popp og nammi
  • Fórum svo daginn eftir aftur til Reykjavíkur, og það í hábjörtu veðri ( þökk sé guði ).
  • Horfðum bara á mynd um kvöldið, á Music and Lyrics.
  • Svo á sunnudaginn tók ég og Guðný próf á netinu í Sál103, og vill ég taka það fram að ég fékk 10 í því W00t
  • Svo fórum við Guðný í mat til Gunnars frænda, til að fagna að afi heitinn hefði verið sjötugur í dag, til hamingju með það afi, blessi sál þína. Fengum við Bayones-skinku og brúnaðar kartöflur, sem var bara glæsilegur matur og að sjálfsögðu malt og appelsín með.

Svo fékk ég úr ensku prófi úr 'The Hobbit' í dag, og ég fékk aðra flotta tíu í einkunn, þannig ég er bara í mjög góðu skapi og alls ekki niður látinn eftir þessar einkunnir. En ég held að ég sé búinn að blaðra nóg, þannig ég ætla að enda bloggið með nokkrum myndum frá helginni.

 - Óskar H.


Stæðsta fíkniefnamál sögunnar?

Já talið er að þetta sé með þeim stæðstu fíkniefnamálum sögunnar á Íslandi. Það sem mig undraði nokkuð þar sem það getur verið að þetta gerðist á Fáskrúðsfirði, sem er þónokkuð nálægt bænum sem ég er frá ( Neskaupstaður ). Vona bara að þetta sé í fyrsta og síðasta skiptið sem þeir koma með svona "farm" til landsins, gott á þá að dópið verður upptækt og sitja uppi með 7-8 milljóna króna lán fyrir bátnum Grin 


mbl.is 50-60 kíló af amfetamíni í skútunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flott flott..

Maður bjóst nú alveg við að þeir myndu hækka um sæti eftir þessa tvo leiki Wink  Vona nú bara að þeir haldi þessu áfram og hækka sig áfram, þeir hækkuðu nú alveg um 37 sæti, væri flott ef það myndi nú ské aftur.

Áfram Ísland!
mbl.is Ísland upp um 37 sæti á lista FIFA
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úrslit..

Ekki spurning að Valur hampi bikarnum í dag, spái þessu 4-2, og Marglét Lára með tvennu, restin er getur leikurinn sjálfur svarað Wink
mbl.is Valur krýndur meistari í kvöld?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Síðustu dagar..

Blogg á sunnudagskvöldi er bara mjög algengt, aðalega hjá lötu letidýri eins og mér :-)

En byrjum að að óska Guðnýju Björgu kærustu minni til hamingju með afmælið þann 5. september s.l. ;* Það styttist í bílprófið með hverri mínútunni. En við fögnuðum afmælinu hennar núna um helgina, fórum í gær á T.G.I. Fridays, ég fékk mér crebes með kjúkling og mozarella osti, með salsa sósu og mayonessi, og hún fékk sér kjúklingapasta með makkarónum, mmm...

Svo ætluðum við í bíó eftir það, en þá kom Heimir frændi með svo sannarlega góða hugmynd, að fara að horfa á myndina 300 á skjávarpanum hjá systur sinni, jesús....frekar fór ég að gera það en að fara í bíó kl. 23:10 að kvöldi, hehe :-)

Meðal annars ætlaði ég að koma að efninu; meðan við vorum á T.G.I. Fridays, þá var leikur í gangi, Ísland - Spánn, og ég sannarlega missti mig yfir leiknum, var bara með flottustu leikjunum sem Ísland hefur keppt á þessu ári! Íslendingarnir áttu svo sannarlega skilið að vinna leikinn, fannst hann vera mjög líflegur og vörnin og miðjan hjá Íslandi voru að gera það gott, ekki mikið af mistökum og þetta er allt að koma hjá Eyjólfi Sverrisyni.

En ég held að ég þurfi bráðum að fara enda þetta, en ég skelli einni flottri klippu sem Arnar félagi sýndi mér um daginn, njótið.


Fluttur

Jæja, við "hjúin" erum flutt í Kópavoginn ( ég ætla ekki einu sinni að koma með "það er gott að búa í..." brandarann! ) og höfum bara haft það nice síðan við fluttum 10. ágúst s.l. Höfum verið m.a. að passa litlu systur, og gerum það 4x - 5x á mánuði í staðinn fyrir leigu, sem er finnst mér, mjög vel sloppið :-)

Annars hefur maður verið að kíkja á skyldfólkið fyrir sunnan, á samt alveg eftir að kíkja á báðar ömmurnar í báðum ættum, en það er barnaafmæli á morgun, sem mun redda þessu alveg. Svo datt mér og kærustunni í hug að kíkja á einn leik, Stjarnan - Fjarðabyggð. Og það mun vera sá eini útileikurinn sem maður myndi sjá hjá Fjarðabyggð þetta sumar :-) Ætla bara rétt að vona að þeir komist upp um deild í lok leiktímabilsins, eins staðan er núna þá eiga þeir enn sjéns;

1.Grindavík15112230:1335
2.Þróttur R.15111333:1634
3.Fjölnir1593343:1930
4.Fjarðabyggð1583417:927
5.ÍBV1575325:1426
6.Stjarnan1544729:2916
7.Víkingur Ó1544719:2416
8.Njarðvík1537517:2216
9.KA1543810:3215
10.Þór1534823:2913
11.Leiknir R.1525814:2211
12.Reynir S.1515915:468

Efstu 3 liðin komast í Landsbankadeild ( þrátt fyrir að það lýti öðruvísi út á töflunni )og eins og sést er Fjarðabyggð bara rétt á mörkunum. Og að sjálfsögðu styður maður sína menn ennþá þrátt fyrir að maður hefur flutt suður :-) En jæja, farinn að horfa á Manchester Utd - Portsmouth..

Þangað til næst...


Næsta síða »

Höfundur

Óskar Halldór Guðmundsson
Óskar Halldór Guðmundsson

Bloggari og á fjórða ári í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti.

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband