Gleðilega hátíð

Fyrsta sem ég ætla að gera í þessu bloggi, er að óska öllum ( þeim sem kíkja á þetta blog ) gleðilegra hátíðar og nýs árs, og þakka kærlega fyrir árið sem er nú liðið, og ég vona að allir hafi sett sér áramótaheit, mín voru svo sem ekkert sérstök, aðalega þessi:

  • Standa mig vel í ræktinni
  • Stunda boltann að viti
  • Vanda mig og leggja sem mesta áherslu á námið sem ég er að byrja í
  • Eyða meiri tíma með kærustunni InLove

En við hjúin komum á Norðfjörð 16. desember og eyddum jólafrí-inu ( sem við erum enn í ) fyrir austan, og jólin hafa verið bara mjög góð, þrátt fyrir lítið af djammi hjá mér, þá hef ég aðalega eytt því í leti. Byrjaði reyndar jólin á að fara á Fáskrúðsfjörð og vinna hjá Guðbjarti, það var allt í lagi að vísu, vinna frá 7-19:30, fór á Leiknisæfingu í leiðinni og var svo kominn aftur á Norðfjörð seinna í vikunni. Svo fékk ég nú að sjálfsögðu gjafir, eins og alltaf Smile ég fékk...

  • Blend peysu og Goal II á dvd frá Guðnýju
  • Hluti í vetrardekk, DVD-ferðaspilari og Levi´s gallabuxur frá mömmu og stjúpa
  • Racket grill frá tengdó
  • Hluti í vetrardekk, joe boxer náttbuxur frá ömmu í Hfj og ömmu & afa á Sfj.
  • Rakspíra frá Gunna og Lindu
  • Simpsons myndin frá Berglindi
  • Bolta frá litlu systur
  • Rosalega flott sængurver og koddaver frá ömmu og afa í Rvk.
  • og margt margt fleira..

Og auðvitað þakka ég fyrir alla gjafirnar, voru rosalega flottar og ég var hæstánægður með þær. Svo eigum við flug aftur 7. janúar suður, og skólinn byrjar 10. janúar, og ég sjálfur er orðinn spenntur fyrir nýja náminu sem ég er að fara í ( Grunndeild tré ). En ég held að ég hef sett nóg hér inn til að þetta kallist flott áramótablogg Wink en ég skelli hérna 1-2 myndum, later.





ar2004


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Flott að þú bloggaðir ástin :) Búið að taka þig margar vikur að komast í gírinn, hehe. Verður bara að fara blogga oftar.

Elska þig ;);*

Guðný Björg (IP-tala skráð) 2.1.2008 kl. 17:41

2 identicon

Hææææhó

Ætlaði bara að kvitta fyrir komu mína hingað..og gleðilegt nýtt ár :) Þú hefur greinilega fengið slatta af dóti í Jólagjöf, er að meta að þú fékkst goal 2 var einmitt að horfa á hana í jólafríinu og hún er geðveik :)

Petra Lind (IP-tala skráð) 3.1.2008 kl. 16:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Óskar Halldór Guðmundsson
Óskar Halldór Guðmundsson

Bloggari og á fjórða ári í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband